top of page

Tunglið 

 

 

​Hefur tunglið áhrif á okkur? Og þá hvernig?
Getum við nýtt okkur áhrif þess og orku í daglegu lífi?

 

Tunglið og við – samband orkunnar og hjartans, þessi eilífi félagi jarðarinnar, hefur frá örófi alda haft djúp áhrif á allt líf á jörðinni.

 

Við sjáum áhrif þess á hafstrauma og náttúruríki – en oft gleymum við því hvernig það snertir okkur sjálf. Okkar eigið vatn, orku og tilfinningar – allt dansar við takt tunglsins.

Og talandi um vatn, ef tunglið getur haft áhrif á flóð og fjöru, þá hlýtur það að hafa áhrifa á okkur sem erum byggð upp af 80% vatni… hefði maður haldið…

​

Við erum vatn, við erum tilfinningar og við erum tengd…
​

Þegar við tökum eftir hvernig tunglið hefur áhrif á okkur – hvernig við verðum tilfinninganæmari, orkumeiri eða þreyttari eftir stöðu þess – þá getum við fínstillt okkar eigin líf. Við getum stillt dagatalið okkar, vinnu, athafnir og hvíld eftir þessum forna takti náttúrunnar.

​

Þegar tunglið vex, minnkar eða ljómar fullt upp næturhimininn, breytist líka orkan í kringum okkur og innra með okkur, það hefur áhrif á innsæi og dýpstu langanir sálarinnar.

​

Við erum hluti af heild – og tunglið minnir okkur á það, aftur og aftur

Förum yfir það hvernig tunglið hefur áhrif á okkur og hvernig við getum nýtt okkur orku tunglsins í andlegu og daglegu lífi.

​

Byrjum á tunglstöðunum, hvað þær eru og hvernig þær virka
​

Tunglstöður eru ólík stig í hringferli tunglsins sem endurnýjast á umþbl. 29,5 daga fresti.
8 helstu stöður eru:

Nýtt tungl, 

Vaxandi hálftungl, Vaxandi Sigð 

Vaxandi tungl, Fyrsta kvartil

Gleitt vaxandi 

Fullt tungl

Gleitt minnkandi 

Síðasta kvartil

Minnkandi Sigð og aftur nýtt tungl.

– Hver staða hefur sína orku og áhrif á líkama, huga og sál.

Ef við hugsum okkur tunglið eins og klukku, fer í sömu átt og klukkan hækkandi, lækkandi….

Þannig að hver og ein tunglstaða er í sirka 3-4 daga, svo við höfum ekki mikinn tíma til að nýta orkuna sem best.

 

 

Það sem þú nærir í nýju tungli, blómstrar við fullt tungl…

 

​

 

🌑 Nýtt tungl – Tími til að sá fræjum og setja fyrirætlanir

Orka: Endurnýjun, nýtt upphaf, framtíðarsýn, draumar og meðvituð sköpun, innhverf orka.

Gott að gera:

  • Skrifa fyriráætlanir, óskir og markmið í dagbók.

  • Hugleiða: „Hver vil ég vera?“

  • Búa til kraftmikla mánaðaryfirsýn eða markmiðatöflu (vision board).

  • Fjárhagur: Settu fjárhagsleg markmið – skrifaðu niður tekjudrauma eða sparnaðarmarkmið og útgjaldaáætlun.

  • Ástir: Íhugaðu hvað þú vilt í sambandi eða ástum. Fullkominn tími til að laða að nýja orku í ástarlífi.

  • Heilsa: Byrjaðu nýtt heilsuboost – hreinsun, föstur eða hreyfingarútínu, t.d. að skrá þig í jóga, eða byrja að æfa.

  • Vinna: Settu skýrar fyrirætlanir fyrir verkefni, drauma eða feril.

  • Lífsstíll: Endurskoðaðu lífsstílinn þinn og hvaða breytingar þú vilt sjá. Byrjaðu á nýrri daglegri rútínu, t.d. morgunritúal/rútínu. Ræktaðu sjálfsást og sjálfsmynd með jákvæðum staðhæfingum.

 

Forðast:

  • Að keyra áfram verkefni af krafti áður en skýr sýn er komin

  • Að taka stórar ákvarðanir án nægrar ígrundunar

  • Of mikla félagslega virkni – þetta er innhverfur tími

  • Að hunsa innsæið eða hvatir hjartans

  • Að bera saman sig og aðra – þú ert að planta þínu fræi

 

 

🌒 Vaxandi sigð – Vöxtur og næmni

Orka: Von, uppbygging, næming á drauma, næra fræin sem sáð var, sjá hlutina taka form.

Gott að gera:

  • Skref fyrir skref að framkvæma fyriráætlanir.

  • Skrifa niður litla sigra og halda sjálfstrausti við.

  • Fjárhagur: Taktu fyrstu skrefin að nýjum tekjustraum – hafðu trú.

  • Ástir: Hafðu frumkvæði – farðu á stefnumót eða opnaðu hjartað í núverandi sambandi. Rækta sambönd: Senda falleg skilaboð, veita kærleiksríka athygli.

  • Heilsa: Haltu áfram með nýju heilsubreytingarnar – nærðu líkamann með góðu fæði og vatni. Skipuleggjðu líkamlega umönnun: heilsurútínu, svefn, vökvun. Stilltu hugann með öflugum möntrum, t.d. „Ég treysti skrefunum mínum.“

  • Vinna: Byrjaðu að framkvæma – gerðu fyrstu litlar aðgerðir í átt að stærri markmiðum. Rannsakaðu ný tækifæri í vinnu eða fjármálum – til dæmis námskeið eða tækni.

  • Lífsstíll: Fylgdu innblæstri – leyfðu nýjum áhugamálum eða rútínu að blómstra.

Forðast:

  • Að gefast upp ef hlutirnir fara hægt af stað

  • Að vera óþolinmóð/ur með niðurstöður

  • Að dreifa orkunni of mikið – veldu eitt til að fókusera á

  • Að hunsa eigin líkama og þarfir – hlustaðu vel

  • Að tala þig niður – ræktaðu sjálfstraust

 

 

🌓 Fyrsta kvartil – Ákvarðanir og viljastyrkur

Orka: Krefjandi en hvetjandi – tími til að sigrast á hindrunum og halda fókus.

Gott að gera:

  • Átta sig á því sem stendur í vegi fyrir framförum – skrifa það niður og takast á við það.

  • Bregðast við tækifærum sem kalla á þig – jafnvel þó að þau séu óþægileg.

  • Fjárhagur: Taktu stjórn og ákvarðanir um fjárfestingar og eyðslu.

  • Ástir: Skoðaðu hvað stendur í vegi fyrir tengingu – hreinsaðu tilfinningar. Endurtengjast ást sinni – dýpri samtöl, hreinsun og settu mörk.

  • Heilsa: Efla líkamsstyrk og andlegt úthald – ýttu aðeins fastar. Finndu styrk í líkamanum – styrktaræfingar, dans eða gönguferðir henta vel.

  • Vinna: Taktu mikilvægar ákvarðanir, kláraðu það sem þú byrjaðir á. Sýndu staðfestu og hugrekki í verkefnum.

  • Lífsstíll: Fylgstu með hvar þú ert að stíga út fyrir þægindarammann og styrktu þig þar.

Forðast:

  • Að fresta aðgerðum sem krefjast hugrekkis

  • Að gefa of mikið í til að þóknast öðrum

  • Að láta óöryggi stjórna

  • Að sleppa endurskoðun á áætlunum

  • Að missa fókus á heildar myndinni

 

 

🌔 Gleitt vaxandi – Sköpun og sýnileiki, framgangur og uppbygging

Orka: Sköpunarmáttur í hámarki, hvatning og uppbygging– verkefni blómstra, útfærsla og smáatriði fara að taka á sig skýrari mynd.

Gott að gera:

  • Halda áfram með verkefni – klára, fínpússa og leggja áherslu á gæði.

  • Leyfa sér að „vera séð/ur“ – tengjast á samfélagsmiðlum, tala við heiminn.

  • Njóta félagslegra tengsla og samveru..

  • Fjárhagur: Ný tækifæri birtast – vertu opin/n fyrir samstarfi og nýjum hugmyndum. Gerðu fjárhagsáætlun, forgangsraðaðu og styrktu grunnstoðir.

  • Ástir: Sambönd verða dýpri – tenging á dýpri og rómantískari hátt.

  • Heilsa: Þú finnur meiri orku – fullkominn tími fyrir æfingar og djúpa næringu. Nærðu líkamann  – búðu til mat úr rótum og litríku hráefni.

  • Vinna: Koma hlutum á flug – virkja sköpunargáfu og lausnamiðað hugarfar.

  • Lífsstíll: Gerðu breytingar sem stuðla að lífsánægju og gleði. Þróaðu með þér lífsstíl sem styður innri vöxt og vellíðan

Forðast:

  • Að taka að sér of mikið í einu – skýr mörk eru lykillinn

  • Að hunsa sjálfsumönnun þegar hlutir fara að flæða

  • Að leyfa sjálfumglaðri orku að verða stjórnlausri

  • Að missa tengsl við andlegu hliðina – jarðtenging skiptir máli

  • Að hunsa smáatriði í vinnu eða samskiptum

 

 

🌕 Fullt tungl – Birting, losun og orka í hámarki

Orka: Hápunktur tilfinninga, uppljómun, innsæi og tilfinningaleg losun, opinberun – það sem er falið kemur í ljós.

Gott að gera:

  • Hugleiða eða framkvæma losunar athöfn (skrifa á blað og brenna það sem þú ætlar að sleppa).

  • Taka stöðumat á markmiðum og fagna því sem hefur gengið vel.

  • Hreinsa heimilið með reykelsi eða hljóðorku (tónlist, bjöllur, tónskál).

  • Tjá tilfinningar, dansa, gráta, hlæja – leyfa öllu að flæða.

  • Fjárhagur: Taktu stöðumat – hvað virkar og hvað þarf ég að sleppa?

  • Ástir: Tilfinningar magnast – samskipti geta verið mjög ástríðufull eða krefjandi.

  • Heilsa: Hlustaðu á líkamann – stundum þarf hvíld og stundum losun. Hvíldu þig ef þreytan kemur – orkan getur verið yfirþyrmandi. 

  • Vinna: Kláraðu það sem þú byrjaðir – tími til að fagna eða endurmeta.

  • Lífsstíll: Hreinsaðu orkuna þína – losaðu um drasl og orkulegar festingar.

Forðast:

  • Að taka mikilvægar ákvarðanir í uppnámi eða tilfinningahita

  • Að troða niður tilfinningum sem koma upp – þær eru spegill

  • Að ofhugsa eða ofgreina sambönd – þetta er speglunartími

  • Að vera í of miklu áreiti eða of mörgum verkefnum samtímis

  • Að gera ekkert með innsæið sem kemur – farðu í framkvæmd eftir úrvinnslu

 

 

🌖 Gleitt minnkandi – Þakklæti og íhugun

Orka: Hægari tíðni – þakklæti, úrvinnsla og innri kyrrð, innsæi og undirbúningur fyrir að sleppa.

Gott að gera:

  • Skrifa niður allt sem þú ert þakklát/ur fyrir síðustu vikur.

  • Hugleiða: „Hvað lærði ég?“ „Hverju má ég sleppa?“

  • Rækta andlegu hliðina – tenging við leiðbeinendur eða drauma.

  • Endurskipuleggja tíma og orkunotkun.

  • Fjárhagur: Þakkaðu fyrir það sem hefur streymt til þín – slepptu kvíða um peninga.

  • Ástir: Taktu tíma fyrir sjálfsást og speglun í samböndum.

  • Heilsa: Njóttu nærandi hvíldar og mjúkrar hreyfingar – jóga, göngur, djúpar teygjur. Gefðu þér leyfi til hvíldar án sektarkenndar.

  • Vinna: Íhugðu hvað þú hefur lært og hvað má bæta.

  • Lífsstíll: Gerðu rólega hluti sem færa sátt og frið.

Forðast:

  • Að hunsa það sem þú hefur lært – tími til að samþætta

  • Að halda fast í eitthvað sem þarfnast að fara

  • Að fylla dagana með vinnu til að forðast innri rödd

  • Að gleyma að hrósa sjálfri/sjálfum þér fyrir ferðalagið hingað

  • Að hunsa tengingar við aðra – deildu innsæinu

 

 

🌗 Síðasta kvartil – Hreinsun, losun og fyrirgefning

Orka: Lokahringrás, losun, fyrirgefning, innri viska og léttir.

Gott að gera:

  • Fyrirgefningaritúal – skrifa og sleppa gömlum sárum.

  • Endurtengja við hjartað – skrifa ástarbréf til sjálfsins.

  • Fjárhagur: Hreinsaðu út gamlar skuldir eða óttatengdar fjárhagslegar hugsanir.

  • Ástir: Fyrirgefðu gömul sár – hreinsaðu hjartað.

  • Heilsa: Hreinsun (detox), orkupunktameðferðir, hugleiðsla. Bæta svefn, fæða og tilfinningalega næringu.

  • Vinna: Losaðu verkefni sem eru ekki lengur í samhljómi við þig, fækkaðu verkefnum og hægðu á.Loka verkefnum með virðingu og heiðarleika.

  • Lífsstíll: Minnka streitu – einfalda og róa lífið. Losaðu út drasl og óreiðu – bæði andlega og í kringum þig

Forðast:

  • Að halda í gremju eða sektarkennd – nú er tími til að sleppa

  • Að láta efa stjórna næstu skrefum

  • Að ýta tilfinningum til hliðar – þær leiða til frelsis

  • Að fresta endurskoðun á daglegu lífi þínu

  • Að gleyma því að þú ert alltaf að vaxa – líka þegar þú ert að losa

 

 

🌘 Minnkandi sigð – Djúp kyrrð, innri viska og undirbúningur

Orka: Djúp íhugun, tenging við innsæi, hvíld, draumaspá og endurnýjun sálartengsla, lokahringrás

Gott að gera:

  • Sjá fram á næsta tunglmánuð – en án þrýstings eða ákvörðunar.

  • Hugleiðslur eða athafnir sem styrkja innsæi – tarot, oracle spil.

  • Vinna með sálartölu, drauma og djúpar tilfinningar.

  • Settu upp plan – undirbúðu pláss fyrir nýja byrjun.

  • Fjárhagur: Endurskoðaðu peningatengsl – hver er þín saga með fjármál?

  • Ástir: Dýpkaðu sjálfsást og sjálfsmeðvitund – viðurkenndu drauma og þrár.

  • Heilsa: Slökun, hvíld og endurnýjun orkukerfis.Taktu 1-2 daga í innri kyrrð – skrifa, sofa, dreyma og hlusta.

  • Vinna: Losaðu síðustu orkubindingar og slakaðu á í sköpunarflæði.

  • Lífsstíll: Verndaðu orku þína – segðu nei við því sem dregur úr þér. Vertu út í náttúrunni eða í einveru – slökktu á utanaðkomandi áreiti.

Forðast:

  • Að neita sér um hvíld – orkan þarfnast endurhleðslu

  • Að ýta sér áfram – þetta er ekki framkvæmdartími

  • Að hunsa drauma, innsýn eða fyrirboða

  • Að vera of hörð/harður við sjálfa/n þig

  • Að reyna „leita að svarinu“ í ytra umhverfi – svarið býr innra með þér

 

Hagnýtar leiðir til að fylgja tunglinu í daglegu lífi 

​

Dagbók: Skráðu hvernig þér líður í mismunandi tunglstöðum.


Tungldagatal: Hver tunglstaða hefur sinn takt – lærðu að vinna með hann.


Skapaðu þína eigin tungl athöfn: Taktu tíma í að kveikja á kerti, setja skýran ásetning og/eða ætlun hvort sem það er eitthvað sem þú vilt efla eða sleppa tökum á.


Hugleiðsla við tunglbyrtingar: Þú getur búið til þínar eigin hugleiðslur eða notað leiddar á YouTube/Podcasts.


Vökvun og tilfinningar: Mundu að við erum 80% vatn – tunglið hreyfir við okkur, líkt og hafinu. Því skiptir máli að hlusta á líkamann og sálina.

​​

Við erum hluti af náttúrulegu orkuflæði.

Tunglið kennir okkur að vera meðvituð um breytingar, sveiflur og að það sé allt í lagi að hvílast stundum – og að skína á öðrum tímum.
Þú þarft ekki að gera allt fullkomið – það dugar að stilla sig inn og hlusta.
Prófaðu í einn tunglmánuð – og sjáðu/finndu hvað breytist hjá þér.

 

Hvernig nýti ég mér orku tunglsins?
  1. Fylgstu með eigin orkubreytingum – skrifaðu niður hvernig þér líður í hverri stöðu.

  2. Skapaðu eigin tungl athafnir: kerti, dagbókarskrif, vatnsorka, bað, kristallar.

  3. Skipuleggðu lífið eftir tunglinu: hafðu t.d. ekki stór fundarverkefni á minnkandi tungli.

  4. Nota tunglið sem tíma - og orku klukku, ekki pressu – það er til að hjálpa þér, ekki flækja lífið.​

© 2024 Hulin Öfl                                                                                                                                                           hulinofl@gmail.com

bottom of page