top of page

Tíðni Jarðar

Mælingarnar sem birtast hér að neðan uppfærast daglega, fólk sem er viðkvæmt fyrir orkubreytingum finnur einna helst fyrir þessum þremur tegundum af virkni.

​

Sólargos (Solar Flare)

Orkubylgjur frá sólinni sem geta haft áhrif á líkama og huga.

 

Margir geta fundið fyrir höfuðverk, þreytu, pirringi og jafnvel upplifað tíma öðruvísi þá daga sem sólargos eru mikil.

​

K-vísitalan (K-Index) 

Mælir segulsvið jarðar.

 

Þegar K-vísitalan er há geta einstaklingar fundið fyrir kvíða, svefntruflunum, tilfinningalegum róti eða því að vera "utan við sig."

​

Schumann-tíðnin 

Rafsegulsveiflur í lofthjúp jarðar sem líkjast tíðni heilabylgna.

 

Þegar tíðnin er há (eins og High á myndinn) finna margir fyrir þreytu, auknum draumum, djúpri huglægni eða að gömul sár komi upp á yfirborðið.

Hvernig nýti ég þessar upplýsingar?

Fylgstu með líðan þinni

​

Skráðu líðan þína í dagbók á þeim dögum sem tíðnin er há, finnur þú mun?

Hvernig finnst þér mismunandi tíðni hafa áhrif á þig?

Sýndu þér umhyggju​

​

Á þeim dögum sem tíðnin er sérstaklega há er gott að hægja aðeins á sér, drekka vel af vatni og reyna að tengjast náttúrunni.

Þú ert ekki ein/einn​

​

Margir finna vel fyrir þessum einkennum, þú ert ekki að ímynda þér þetta!

Viltu vita meira um orku?

Hlustaðu á hlaðvarpsþáttinn okkar um heilun

Skoðaðu grein um orku og tíðni

Skoða þjónustuaðila sem vinna með orkuheilun

Ræddu upplifun þína við aðra sem finna fyrir orkubreytingum jarðar!

© 2024 Hulin Öfl                                                                                                                                                           hulinofl@gmail.com

bottom of page